Fornleifar

1800
Horfin. Svæðið þar sem rústin var skráð á er allt hlaupið í þúfur og grasivaxið. Ummál tóftarinnar var áætlað útfrá teikningu frá 1995, 5 x 7 m. Á norðanverðum tanganum sem Elliðavatnsbærinn stendur á er rústalegur hóll og garðlag á lágri hæð (2,5 m) sunnan við Álinn. Innan heimatúns. Árið 1995 voru skráðar tvær minjar á hæðinni, tóft (214-47) og stekkur (214-48).[1] Við skráningu í september 2025 fannst tóftin ekki á svæðinu skv. teikningu 1995. Svæðið er mjög þýft, grasivaxið með mikilli sinu og meðfram allri hæðinni er mikill og þéttur trjágróður. [1] Bjarni F. Einarsson, Fornleifaskrá Reykjavíkur, bls. 106.

Aðrar upplýsingar

Ártal
Áætlaður aldur frá: 1800
Safnnúmer
Johnsen nr.: 214-47 Safnnúmer B: 181150-47 Safnnúmer A: R-76 Verkefnanúmer: 3456
Stærð
7 m 5 m
Staður
Fornleifaskráning: Staður: Elliðavatn, Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Heimildir
Fornleifaskrá Reykjavíkur.

Upprunastaður

64°5'16.4"N 21°45'51.1"W