Fornleifar

1850
Tóftin hefur verið grafinn inn í hólinn, hallar til norðurs. Liggur norðvestur suðaustur, op á norðurhlið. Veggir úr torfi og grjóti, 1,5 – 2,3 m á breidd og 0,3 – 0,5 m á hæð. Utanmál 7,5 x 5,1 m, innanmál 3 x 1 m. Á rústalegu svæði 6 m vestan við er garðlag 6 x 2 m sem gæti hafa tilheyrt tóftinni, skráð á sama númer. Hvortveggja á kafi í grasi og sinu. Í gamla heimatúninu nánast efst á norðanverðum Túnhólnum, 126 m austur af Elliðavatnsbæ, ofan við grenilund er jarðlæg útihúsatóft og garðlag. Í örnefnaskrá segir: „Sunnan í hólnum er lítil tóft eftir fjárhús eða hesthús; hún er ekki mjög gömul og greinileg enn. Önnur tóft er norðan við hólinn. C.Z. heyrði talað um, að hún væri eftir fjós, aðrir sögðu eftir mannabústað. Þessi tóft er eldri en hin; hún sést enn.“[1] [1] Stofnun Árna Magnússonar. Örnefnaskrá. Elliðavatn. Heimildarmaður Christian Zimsen. Guðrún Þóra Guðmannsdóttir hreinritaði 15. maí 1984, bls. 5.

Aðrar upplýsingar

Ártal
Aldur: 1850
Safnnúmer
Johnsen nr.: 214-13 Safnnúmer B: 181150-13 Verkefnanúmer: 3456 Safnnúmer A: R-74
Stærð
7,5 m 5,1 m
Staður
Fornleifaskráning: Staður: Elliðavatn, Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Heimildir
Athugasemdir og viðbætur Christians Zimsen við örnefnaskrá. (Ö.Ell.2). Bjarni F.Einarsson, 1995. Fornleifaskrá Reykjavíkur. Skýrslur Árbæjarsafns. 1995.

Upprunastaður

64°5'12.7"N 21°45'53.7"W