Þingnesslóð
1800

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Göturnar er mjög djúpar og margar vestan við Reiðhól frá bílastæði við sveitarfélagsmörkinn (girðing) að Þingnesvegi um 350 m. Norður að vatninu er slóðinn óljós að mestu nema vestan við Bakkasel (Elliðavatnsblett 34) þar er 50 m kafli af sýnilegum mjög grónum götum (trjágróður). Göturnar koma svo aftur fram vestan við Heimalæk á um 50 m kafla og aftur austan við Heimalæk 150 m kafla, á þessum svæðum koma göturnar skýrt fram og voru þær mældar upp, eftir það eru þær óljósar að Elliðavatnsbænum.
Samkvæmt herforingjaráðskorti frá 1909 lágu þrjár leiðir að Elliðavatni. Fyrst ber að nefna leiðina sem lá fyrir vestan Elliðavatn frá Vatnsenda að Elliðavatnsbænum (214-49). Hægt er að rekja gömlu reiðleiðina eftir loftmyndum og á sumum stöðum er hún enn sýnileg, víða greindist hún í fleiri en eina götu. Þar sem hægt var að greina leiðina var hún mæld og ljósmynduð. Frá Vatnsvík með Reiðhól eru mjög niðurgrafnar götur, líklega hluti af elstu leiðinni með vatninu, þessar götur voru notaðar þar til ný malarborin reiðgata var gerð um 1990. Frá Reiðhól er hægt að fylgja götunni á loftmyndum í átt að vatninu að Bakkaseli (Elliðavatnsbletti 34) og áfram norðan við Lækjarmót (Elliðavatnsbletti 33), en þá sést gatan aftur með Þingnesslóð við vestari farveg Heimlækjar en þar er leiðinni lýst í örnefnaskrá og sagt að í læknum hafi verið hellur (214-28), þær eru nú horfnar. Þegar leiðinn er komin yfir austari lækjarfarveg Heimalækjar verður leiðinn aftur sýnilega þar sem hún stefnir í norður að Lynghól (Elliðavatnsbletti 32), þar sem hún hverfur, en hægt er að greina hana á loftmynd yfir lóðina, vestan við fjárhús Emils Rokstad (214-48) og það heimtröð Elliðavatns eða um tæpir 1,7 km. [1]
[1] Náttúrufræðistofnun. Loftmyndir: 1954-07-28. Svæði 27. Elliðavatnsheiði Hlíðnes. Mynd: L12-0239. Mynd AMS40_1-1_051. 1945-08-30.
Aðrar upplýsingar
Titill
Sérheiti: Þingnesslóð
Ártal
Aldur: 1800
Safnnúmer
Johnsen nr.: 214-49
Safnnúmer B: 181150-49
Verkefnanúmer: 3456
Safnnúmer A: R-72
Staður
Fornleifaskráning: Staður: Elliðavatn, Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Heimildir
Athugasemdir og viðbætur Christians Zimsen við örnefnaskrá. (Ö.Ell.2).
Upprunastaður
64°4'48.8"N 21°47'0.8"W







