Elliðavatn

1850
Um 110m langur garður sem liggur N-S. Garðurinn er úr grjóti, 0,5 - 1,5 m  breiður og 0,2 - 0,5 m hár. Grjótið er yfirleitt  0,3 - 0,5 m. á stærð. N - endinn beygir í SV þar sem hann hefur verið rofinn vegna bílastæðis. U.þ.b. við miðju garðsins (45 m. frá N - enda) er hlið, 2 m. breitt og S - megin í því gengur garður í SA, 2 m. langur, 1 m breiður og 0,2 m hár. SV - endi garðsins er aðeins úr lagi færður með stórum steinum, sem hafa verið lagðir þar í seinni tíð. Austan við Túnhólinn, samsíða Þingnesvegi, er vel greinilegur hluti af túngarði Elliðavatns sem var teiknaður á túnakort 1916.[1] Garðurinn hefur legið nánast norður suður frá Elliðavatni austan við Túnhólinn þar til hann hefur sveigt til norðvesturs með hólnum að bæjarstæði Elliðavatns. Garðurinn sést vel á loftmynd frá 1954.[2] [1] Þjóðskjalasafn Íslands. Túnakort: Elliðavatn 1916. Vigfús Guðmundsson teiknaði. [2] Náttúrustofnun Íslands, Loftmyndir. Loftmynd: 1954-07-28. Svæði 27. Elliðavatnsheiði Hlíðnes. Mynd nr. L12-0239. Grjótgarður, hlaðinn kringum túnið að austaverðu við Túnhólinn. (Túnakort). Garðurinn er 0,5 - 5m vestan við Þingnesveg.

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Elliðavatn
Ártal
Aldur: 1850
Safnnúmer
Johnsen nr.: 214-3 Safnnúmer B: 181150-3 Verkefnanúmer: 3456 Safnnúmer A: R-71
Staður
Fornleifaskráning: Staður: Elliðavatn, Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Heimildir
Túnakort yfir Elliðavatn frá 1916. Bjarni F. Einarsson, 1995. Fornleifaskrá Reykjavíkur.

Upprunastaður

64°5'11.2"N 21°45'45.6"W