Beitarhúsahóll

1850
Tvær grasigrónar útihúsarústir eru á Beitarhúsahól. Minjasvæðið er um 15x30 m. Önnur rústin er efst á hólnum og sýnilega eldri. Hin er í vesturhlið hólsins. Eldri rústin liggur í norðaustur-suðvestur, er ílöng, tveggja hólfa og dyr líklega í vestur. Þarna hefur verið fjárhús með niðurgrafinni hlöðu norðan við, sem herinn notaði síðar sem skotgröf. Þar stendur enn byssustatíf, járnrör með tveimur vinklum í steyptum ferhyrndum fæti, ætlað fyrir gervibyssu úr tré. Rústin mælist 15x9 m. Tóftirnar eru orðnar mjög jarðlægar og grónar en vel greinanlegar og undir þeim gætu verið eldri minjar. Veggir úr torfi og grjóti, 1,0 - 1,5 m breiðir og 0,2 - 0,9 m háir. Dyr fjárhússins gætu hafa verið á suðurgaflinum, en erfitt er að gera sér grein fyrir því vegna þess hversu jarðlæg og hrunin tóftin er. Vestan í hólnum er ílöng húsatóft, 15x6 m, sem liggur nánast í austur-vestur. Hún hefur að hluta verið grafin inn í hólinn og er eitt hólf með opi á vesturgafli. Tóftin er heilleg og stendur vel, hlaðin úr torfi og grjóti með greinilegum garðlögum, veggir eru um 1,0 m breiðir og 0,2 – 0,6 m háir að utanverðu. Veggir hafa aðeins hrunið inn í tóftina en austurgafl stendur vel. Norðan við langhliðina er stórgrýtishrúga og laut þar fyrir ofan. Samkvæmt loftmynd frá árinu 1954 virðist hafa verið þar tóft af öðru ílöngu húsi sem hefur legið í norðvestur-suðaustur. Veggir eru úr torfi og grjóti, 0,2 – 0,3 m háir og um 1 m breiðir. Mögulega hefur verið þarna önnur húsarúst eða heygarður áður, sem hefur verið fyllt af grjóti úr túninu. Beitarhúsatóftir eru á Beitarhúsahól sem er 34 m suður af Suðurlandsvegi, um 135 m suður af bænum Hólmi sem er sunnan við Hólmsá og 140 m norðvestur af Bakkakoti.[1]Tóftirnar eru í  grasigrónum hrossahaga, lúpína sækir að stykkinu en er ekki komin á hólinn. Norðan við Beitarhúsahól eru ummerki eftir girðingu samsíða veginum, grjóti hefur verið hlaðið undir hana. [1] Örnefnasafn Árnastofnunar: Örnefnalýsing Hólmur (181149-213-1 og 181149-213-2).

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Beitarhúsahóll
Ártal
Aldur: 1850
Safnnúmer
Johnsen nr.: 213-14 Safnnúmer B: 181149-14 Verkefnanúmer: 2142 Safnnúmer A: R-7
Stærð
Lengd: 30 m Breidd: 15 m
Staður
Fornleifaskráning: Staður: Hólmur, 110-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Heimildir
Örnefnaskrá Ara Gíslasonar yfir Hólm. (Ö.Hólmur 1:1 og 1:2). Fornleifaskrá Reykjavíkur 1995, Bjarni F. Einarsson.

Upprunastaður

64°5'34.1"N 21°43'13.8"W