Fornleifar
1927

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Klakhús 2, yngra klakhúsið, er um 6,5 x 4,5 m (NV - SA). Veggir úr grjóti og torfi, 0,8 - 1,0 m breiðir og 0,3 - 0,6 m háir. Dyr líklega í NV. Mikið grjót í gólfi.
Á votlendu svæði austan við Heimalæk 13 m norðvestur af göngubrú yfir lækinn og 30 m norður af Þingnesvegi eru tóftir klakhúss frá 1927. Á vesturbakka lækjarins 20 m suðvestan við er eldra klakhús (214-26) ekki í eins góðu ásigkomulagi. Í örnefnaskrá yfir Elliðavatn segir:
„Tvö klakhús voru byggð í Heimalæknum. Eldra [klak]húsið byggði Þórður Flóventssom frá Svartárkoti í Bárðardal, árið 1923. Hann var á vegum Búnaðarfélagsins. Tóft þessa klakhúss er niðri undir vatninu, vestan megin lækjarins. Húsið var byggt á bakkanum og tekinn stokkur úr læknum. Hitt [klak]húsið var byggt 1927 af Ólafi Sigurðssyni frá Hellulandi, starfsmanni Búnaðarfélagsins. Þá var rafveitustíflan gerð, og yfirborð vatnsins hækkaði; vatnið flæddi upp í klakhúsið frá 1923, og varð því að byggja annað heldur ofar og austan við lækinn.“ (Ö.Ell.2).
Um 50 m NV af vegi að Þingnesi og niður undir vatni, á milli Millulækjartjarnar og Elliðavatns.
Við Heimalæk. Úthagi.
Kort: 1613 III SV: 62-09
Aðrar upplýsingar
Ártal
Aldur: 1927
Efni
Safnnúmer
Johnsen nr.: 214-27
Safnnúmer B: 181150-27
Verkefnanúmer: 3456
Safnnúmer A: R-69
Stærð
7,8 m
6,7 m
Staður
Fornleifaskráning: Staður: Elliðavatn, Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Heimildir
Athugasemdir og viðbætur Christians Zimsen við örnefnaskrá. (Ö.Ell.2).
Bréf frá Gatnamálastjóra, dags, 2. feb. 1979 (Þjms).
Upprunastaður
64°4'59.3"N 21°46'4.7"W





