Fornleifar

1923
Klakhús 1, eldra klakhúsið, er 6 x 5m (NV - SA). Veggir úr grjóti og torfi, um 1,0 m breiðir og 0,2 - 0,5 m háir N - og A - hlið nánast horfnar. 20 m SA og ofar við lækinn af klakhúsi 1 er klakhús 2. (sjá nr. 27) Á votlendu svæði vestan við Heimalæk 37 m norðvestur af göngubrú yfir lækinn og 60 m norður af Þingnesvegi eru tóftir klakhúss frá 1923. Á austurbakka lækjarins 20 m suðaustan við er yngra klakhús (214-27) sem er í betra ásigkomulagi. Í örnefnaskrá yfir Elliðavatn segir: „Tvö klakhús voru byggð í Heimalæknum. Eldra [klak]húsið byggði Þórður Flóventssom  frá Svartárkoti í Bárðardal, árið 1923. Hann var á vegum Búnaðarfélagsins. Tóft þessa klakhúss er niðri undir vatninu, vestan megin lækjarins. Húsið var byggt á bakkanum og tekinn stokkur úr læknum. Hitt [klak]húsið var byggt 1927 af Ólafi Sigurðssyni frá Hellulandi, starfsmanni Búnaðarfélagsins. Þá var rafveitustíflan gerð, og yfirborð vatnsins hækkaði; vatnið flæddi upp í klakhúsið frá 1923, og varð því að byggja annað heldur ofar og austan við lækinn.“ (Ö.Ell.2). Um 50 m NV af vegi að Þingnesi, niður undir vatni, á milli Millulækjartjarnar og Elliðavatns. Við Heimalæk. Úthagi. Kort:  1613 III SV: 62-09

Aðrar upplýsingar

Ártal
Aldur: 1923
Safnnúmer
Johnsen nr.: 214-26 Safnnúmer B: 181150-26 Safnnúmer A: R-69
Stærð
8 m 2 m
Staður
Fornleifaskráning: Staður: Elliðavatn, Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Heimildir
Athugasemdir og viðbætur Christians Zimsen við örnefnaskrá. (Ö.Ell.2). Bréf frá Gatnamálastjóra, dags, 2. feb. 1979 (Þjms).

Upprunastaður

64°4'59.6"N 21°46'6.5"W