Fornleifar
1850 - 1900

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Myllan er um 6 x 5m (NV-SA). Veggir úr grjóti og torfi, 1,0 - 1,2m breiður og 0,2 - 0,5 m hár. Lækurinn rennur að hluta í gegn um og undir fornleifarnar. Mikið grjót er í gólfi (úr veggjum (?)). Ekki er hægt með vissu að staðsetja stíflugarð við fornleifarmar, en mögulega eru restar eftir einn slíkan 2m SA af fornleifunum, þvert yfir lækinn. Við SA - hornið hefur um 40cm. breitt snið verið grafið nýlega í gegnum vegginn og eins hefur erið grafið nýlega í gegnum NV - gaflinn.
Um 20 m ofar við lækinn er Stíflugarður nr. 214-24.
"Lækur rann úr tjörninni norður í Elliðavatn, og hafa sumir kallað hann Myllulæk, en hann var ávallt nefndur Heimaækur, en Myllulækurinn er vestar; malarás er á milli þeirra. Heimlækurinn er stíflaður nú. Greinileg myllutóft er ennþá við myllulækinn. Þar var vatnsmylla, sem korn var malað í. Þessi tóft er frá öldinni sem leið." (Ö.Ell.2).
Um 15 m NV af Þingnesslóð, á milli Millulækjartjarnar og Elliðavatns.
Við og yfir Myllulæk. Úthagi.
Kort: 1613 III SV: 62-09
Aðrar upplýsingar
Skrásetjari: Anna Lísa Guðmundsdóttir
Ártal
Aldur: 1850 - 1900
Safnnúmer
Johnsen nr.: 214-23
Safnnúmer B: 181150-23
Verkefnanúmer: 3456
Safnnúmer A: R-68
Staður
Fornleifaskráning: Staður: Elliðavatn, Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Heimildir
Athugasemdir og viðbætur Christians Zimsen við örnefnaskrá. (Ö.Ell.2).
Fornleifaskrá Reykjavíkur,
Bréf frá Gatnamálastjóra, dags, 2. feb. 1979 (Þjms).
Upprunastaður
64°4'49.9"N 21°46'22.0"W