Bagall

1195 - 1211
Bagall sem lagður var í gröf með Páli biskupi, nú tveir hlutar: a. húnninn eða krókurinn sem lá á hægri öxl biskups og gerður er úr rostungstönn, útskorinn prýðilega og 12,5 cm á hæð, b. járnbroddurinn sem ar í neðri enda stafsins. Sjálfur stafurinn var annars alveg horfinn. Húninum er gjörla lýst í kaflanum um gröf Páls biskups og vísast til þeirrar lýsingar. (Úr Skálholt. Fornleifarannsóknir 1954-1958.)

Aðrar upplýsingar

Ártal
Aldur: 1195 - 1211
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1954-1-2 Safnnúmer A: Sk-2
Stærð
12.5 x 0 x 0 cm Lengd: 12.5 cm
Staður
Staður: Skálholt, 801-Selfossi, Bláskógabyggð
Sýningartexti
Húnn af biskupsstaf, bagli, skorinn úr rostungstönn. Húnninn lá í steinþró, steinkistu, Páls Jónssonar er var biskup í Skálholti frá árinu 1195 til dauðadags 1211, en þróin fannst með beinum biskups og baglinum í við rannsóknir í Skálholti árið 1954. Húnninn endar í dýrshöfði sem virðist bíta á smærra dýr, eitt af fleirum sem skorin eru á legginn. Sú skýring er einnig, að stóra dýrið sé ljónynja, sem blæs lífi í unga sína, en sú trú var til, að ljónynja fæddi dauða unga og blési í þá lífi. Ljónið er algengt í miðaldalist og táknaði hugrekki og styrk. Í augu dýranna hafa verið felldir dökkir smásteinar, sem sumir eru fallnir úr nú. - Þess hefur verið getið til, að Margrét hin haga, sem segir frá í sögu Páls biskups og smíðaði "biskupsstaf af tönn gerðan svo haglega, að enginn maður hafði fyrr séð jafnvel gerðan á Íslandi" og Páll sendi Þóri erkibiskupi í Niðarósi, hafi gert þennan bagal einnig, og má í rauninni telja það líklegt. S-2 Húnn af biskupsstaf, bagli, skorinn úr rostungstönn. Húnninn lá í steinþró, steinkistu, Páls Jónssonar er var biskup í Skálholti frá árinu 1195 til dauðadags 1211, en þróin fannst með beinum biskups og baglinum í við rannsóknir í Skálholti árið 1954. Húnninn endar í dýrshöfði sem virðist bíta á smærra dýr, eitt af fleirum sem skorin eru á legginn. Sú skýring er einnig, að stóra dýrið sé ljónynja, sem blæs lífi í unga sína, en sú trú var til, að ljónynja fæddi dauða unga og blési í þá lífi. Ljónið er algengt í miðaldalist og táknaði hugrekki og styrk. Í augu dýranna hafa verið felldir dökkir smásteinar, sem sumir eru fallnir úr nú. - Þess hefur verið getið til, að Margrét hin haga, sem segir frá í sögu Páls biskups og smíðaði "biskupsstaf af tönn gerðan svo haglega, að enginn maður hafði fyrr séð jafnvel gerðan á Íslandi" og Páll sendi Þóri erkibiskupi í Niðarósi, hafi gert þennan bagal einnig, og má í rauninni telja það líklegt. S-2 Spjaldtexti: Bagall. Biskupsstafur úr rostungstönn. Fannst ásamt beinum Páls biskups Jónssonar, sem lést 1211, í steinþró hans í Skálholti við rannsóknir þar árið 1954. Bagallinn er í rómönskum stíl með dýramynstri og endar í drekahöfði. Vafalaust íslenskt verk frá um 1200. Bishops’ crosier of walrus tusk, found with the bones of Bishop Páll Jónsson of Skálholt (d. 1211 ad) in his sarcophagus during excavations in 1954. The crosier is in the Romanesque style, with zoomorphic ornament, ending with an animal head. Of Icelandic origin, from about 1200 ad.
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Fundaskrá_Munir Undirskrá: Fundaskrá Undirskrá: Skálholt (Sk)
Flokkun
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Bagall
Heimildir
Kristján Eldjárn, Håkon Christie, Jón Steffensen: Skálholt fornleifarannsóknir 1954-1958.Reykjavík 1988. Þóra Kristjánsdóttir, "Margrét hin oddhaga, hreinferðug júngfrú Ingunn og allar hinar". Rit til heiðurs Sigríði Th. Erlendsdóttur sagnfræðingi 2001, bls. 94-96.)

Upprunastaður

64°7'38.6"N 20°31'27.2"W