Aðrar upplýsingar
Titill
Verkheiti: Lilith
Ártal
= 1987
Safnnúmer
Safnnúmer A: LÍ-8071
Stærð
Tímalengd: 00:09:10
Source Image Width : 720
Source Image Height : 480
X Resolution : 72
Y Resolution : 72
Compressor Name : DV/DVCPRO - NTSC
Sýningartexti
Steina er einn af brautryðjendum á heimsmælikvarða í notkun stafrænnar tækni í myndlist. Hún hóf tilraunastarf í þeim efnum þegar á sjöunda áratug 20. aldar og hefur á síðari árum hlotið margvíslega viðurkenningu austan hafs og vestan fyrir nýsköpun í myndlist. Steina hefur ekki bara tekið tæknina í þjónustu myndlistarinnar, með því að gefa okkur stafrænar myndir af heiminum, heldur hefur hún gert tæknina sjálfa að viðfangsefni listar sinnar með frumlegum hætti og varpað þannig nýju ljósi á tengsl myndmálsins og þess sem myndað er. Jafnframt hafa verk hennar varpað nýju ljósi á hin flóknu tengsl mannlegs sjónskyns og þess sjónskyns sem býr í tækninni.
Í vídeóverkinu Lilith birtist okkur nærmynd af eldri konu á hreyfingu í forgrunni en í bakgrunni bærast laufgaðar trjágreinar sem eru ýmist í eða úr fókus. Hljóðið sem er hluti af verkinu virðist vera mjög bjöguð frásögn konunnar og þytur í laufi. Heiti verksins tengist fornri goðsagnapersónu frá Austurlöndum nær: Lilith var samkvæmt sumum sögnum fyrsta eiginkona Adams en var rekin úr Paradís þar sem hún var hrokafull og vildi ekki vera manni sínum undirgefin.
Steina is a global pioneer in the use of digital technology in fine art. Already in the 1960s, she began experimenting in the field, and in later years she has received recognition both in Europe and the USA for her innovative art. Not only has Steina used technology in the service of fine art by giving us digital images of the world, but in an original manner she has made technology the subject of her art, and thus illuminated the connection between visual language and photography. Her work has also cast a new light on the complex relationship between human visual perception and that embedded in technology.
In the video artwork Lilith we are presented with a close-up of an older woman moving in the foreground, but in the background stir verdant branches of trees, either in or out of focus. The sound that forms part of the work seems to be the distorted narrative of the woman and the rustling of leaves. The name of this work is related to an ancient mythical character from the Near East. According to some legends, Lilith was Adam´s first wife, but was ejected from Paradise on account of her arrogance and refusal to submit to her husband.
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Aðalskrá
Undirskrá: DCA
Flokkun
Efnisorð / Heiti
Höfundarréttur
Höfundarréttur: Steina












