Göngustafur
1926

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Göngustafur Indriða
Einarssonar, skálds, og síðar gefanda. Stafurinn er með fílabeinshandfangi,
eftir Ríkarð Jónsson, króklöguðu, lengd (utanmál) 12,1 cm, hæð í buginn
um 3,5 cm. Framan á krókinn er skorin hörpuskel og upp af henni lýra
umkringd af laufskrúði, mjóum krákustígslínum er fléttað eftir endilöngu
handfanginu og allt í kringum það, skera þær hvor aðra og mynda marga jafnstóra
tigla. Handfangið hefur sprungið og er neglt saman með þremur silfurnöglum
hvoru megin. Efst á stönginni neðan við handfangið er gullhólkur,
1,6 cm að breidd með stimplinum J.J. 14K., og áletrun: "Indriði
Einarsson / frá Stórstúku Íslands / 24. júní / 1926."
Stafurinn er því
auðsjáanlega gjöf til minningar um 40 ára afmæli Stórstúkunnar, en Indriði
var einn af aðalhvatamönnum um stofnun hennar 24. júní 1886.
Stöngin er úr mahogný,
póleruð, og endar í nýsilfurhólk, 3,5 cm að breidd og tekur þá við nokkuð
gildur stálbroddur, 3,3 cm að lengd. Stöngin er 77 cm frá hún að
broddi, en allur er stafurinn 84 cm að lengd.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1926
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: L-168
Stærð
84 x 0 cm
Lengd: 84 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Listiðnaðarsafn (L)
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Göngustafur









