Ljósavél, + hlutv.
Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Landvél, ljósavél.
Stórt svinghjól (kasthjól) er framan á vélinni en aftan á reimskífa
með 12 sporum. Gul málningin mikið tekin að flagna af. Þetta er þriggja
strokka tvígengisvél, dísel.
Þrjú áföst skilti
hafa verið á vélinni, eitt á hverjum strokki (cylinder), en nú eru aðeins
tvö eftir. Á því fremra stendur:
HANSEATISCHE MOTORENGESELLSCHAFT
M.B.H.
HAMBURG - BERGEDORF
PS 75/80 UMDR.P.MIN.
400/450 No. 5488
Á aftasta skiltinu
stendur:
HANSEATISCHE MOTORENGESELLSCHAFT
M.B.H.
HAMBURG - BERGEDORF
PS 75/80 UMDR.P.MIN.
400/450 No. 5488
Fyrir neðan strokkana
stendur með stóru letri HMG. Lítur þannig út: [teiknað er á
blaðið stafirnir HMG og halla lóðréttu strik stafsins M út á við og skerast
inn í hina stafina.] Vélin heitir því (tegundin) HMG, en venjulega
kölluð HANSA.
Þetta var fyrst og
fremst ljósavél en knúði eitthvað fleira. Stór hljóðkútur er áfastur
vélinni. Upp úr honum ganga tvö púströr og hefur verið brennt ofan
af þeim báðum þannig að einungis stubbarnir eru eftir.
Kom ný, um 1930,
í Lifrarsamlag Vestmannaeyja. Alltaf notuð þar, líklega fram um 1970
eða eitthvað lengur. Stóð ónotuð í nokkur ár og lenti síðast á haugnum.
Þaðan á Þjms.
Loftkútur frá vélinni
liggur ofan á henni nr. TMS 1988:11. Velin knúði rafal nr. TMS 1988:9
og rafal (mögnunarvél) nr. TMS 1988:7.
Aðrar upplýsingar
Hanseatische Motorengesellschaft m.b.H., Hlutinn gerði
Lifrarsamlag Vestmannaeyja, Notandi
Gefandi: Lifrarsamlag Vestmannaeyja
Lifrarsamlag Vestmannaeyja, Notandi
Gefandi: Lifrarsamlag Vestmannaeyja
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: T
Safnnúmer B: 1988-10
Stærð
265 x 115 x 150 cm
6000 g
Lengd: 265 Breidd: 115 Hæð: 150 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Tækniminjasafn (T)
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ljósavél, + hlutv.