Frystivél, úr íshúsi/frystihúsi
1945

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Frystivél þessi kom
ný í Íshús Hafnarfjarðar árið 1945. Seinna keypti Sjólastöðin hf.,
Óseyrarbraut 5-7, Íshúsið og notaði vélina áfram í sömu húsakynnum. Vélin
var notuð uns hún var tekin niður árið 1989 af Pétri Jónssyni. Fór
beint á Þjóðminjasafn eftir það. Tvö mjög stór kasthjól eru á vélinni,
yfir öðrum er hlíf, mjög stór, en við hitt hjólið er aðeins hlíf á hliðinni,
sem eins og skermar það af. Vélin er máluð ljósgræn og vel útlítandi,
lítilsháttar farið að detta á hana ryð og flagna af málningin. Þrír
mælar allir heilir eru á vélinni.
Á áföstu skilti stendur:
INGERSOLL - RAND
COMPRESSOR
MADE IN U. S. A.
SERIAL NO
TYPE
YEAR
78207
ES - 1 A
1945
STEAM
COMP. CYL. STROKE
& 10½
x 13
STEAM PRESS
DISCH. PRESS R. P. M.
147
220
INGERSOL - RAND CO.,
NEW YORK CITY
Ekki er allt tíundað
hér sem á skiltinu stendur, sleppt leiðbeiningum fyrir notendur.
Rafmótor sem dreif
vélina er á sérstöku númeri TMS 1989:9. Hann stendur nú (03.02.1993)
við hlið vélarinnar. Tveir meiðar eru undir mótor TMS 1989:10-11.
Kondens (kælirinn)
fylgir ekki með frystivélinni.
Í stórum, merktum,
trékassa undir frystipressunni eru alls konar nýir varahlutir.
Pappakassi, varahlutur
og einnig undir frystipressunni, er fullur af stimpilhringjum, varahlutir
fyrir pressuna. Fylgihlutir skráðir sérstaklega eru TMS 1989:9-11.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1945
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: T
Safnnúmer B: 1989-8
Stærð
370 x 180 x 0 cm
5000 g
Lengd: 370 Breidd: 180 Hæð: 0 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Tækniminjasafn (T)
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Frystivél, úr íshúsi/frystihúsi