Ljósavél, + hlutv.

Landvél, ljósavél. Ekkert áfast skilti er á vélinni en á henni stendur með upphleyptum stöfum: BOLINDER'S / SWEDEN. Og á öðrum stað: M 47189. Vélin er rauð og silfurlituð en málningin víða farin að detta af. Er á undirstöðu úr stáli. Þetta er tveggja cylindra glóðarhausavél, gengur fyrir hráolíu. Gæti verið 16 hestöfl. Fyrst notuð í Þorlákshöfn, var þá á vegum kaupfélagsins þar. Fór síðan á Selfoss og notuð í smiðjum kaupfélagsins. Fór þaðan að Hamarsheiði og knúði þar blásara við súgþurrkun. Vélin er talin vera smíðuð á millistríðsárunum. Loftkútur frá vélinni er laus frá TMS 1985:48.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: T Safnnúmer B: 1985-41
Stærð
90 x 70 x 115 cm 300 g Lengd: 90 Breidd: 70 Hæð: 115 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Tækniminjasafn (T)
Efnisorð / Heiti