Landvél, óþ. hlutv.
1953

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Landvél, ljósavél. Vélin er ljósgræn og lítur mjög vel út. Púströr og fleiri hlutar frá henni liggja ofan á. Vélin er með stóru kasthjóli (svinghjóli) og meðfram henni öðrum megin er pallur með handriði og lítill stigi (2 þrep) upp á. Pallurinn er meðfram vélinni endilangri, frá kasthjóli. Handrið er einnig umhverfis kasthjól (öryggisrið).
Fínir mælar enn á vélinni, allir heilir. Fjögur hringlaga og stór lok eru sitthvoru megin á vélinni.
Á þessu stendur:
Atlas
Imperial
Okland
CAL. U. S. A.
Áfast skilti er á vélinni, aftarlega, rétt ofan við pallinn.
Á því stendur:
ATLAS IMPERIAL DIESEL ENGINE COMPANY
OAKLAND, CAL. MATTOON, ILL.
MODEL NO. 4 HS 1125 ENGINE NO 12712
H. P. 160 R.P.M. 360 FIRING ORDER 1243
INTAKIE OPENS 10 B.T.C EXHAUST CLOSES 5 A.T.C.
SPRAY VALVE OPENS 8 B.T.C SPRAY VALVE CLOSES 18 A.T.C.
ALL START OPENS 5 B.T.C SPRAY TIP 6 11 15
ALWAYS FURNISH ENGINE NUMBER WHEN ORDERING
MADE IN U.S.A.
Pallur, strigi og grindverk á vélinni íslensk smíði frá Landssmiðjunni. Ofan á vélinni liggja púströr, spíssar, olíurör og törnjárn. Ýmsir boltar í litlum pappakassa fylgir einnig og er hann ofan á v´leinni aftast. Aðeins törnjárn og púströr skráð á sérstök númer TMS 1991:27-28).
Rafall nr. TMS 1984:179 fylgir með vélinni.
Vélin var notuð við kennslu í Vélskóla Íslands. Hún er með 4 strokkum, fjórgengis díselvél.
Vél no. 2
Atlas Imperial samstæða
Stærð 160ha., 110kW., 100kVA., 360sn/mín.
Vélin kom til Stykkishólms árið 1953 og var í notkun til ársins 1961.
Vélin var gefin Vélskólanum í Reykjavík og er þar enn sem kennsluvél.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1953
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: T
Safnnúmer B: 1991-26
Stærð
330 x 180 x 250 cm
10000 g
Lengd: 330 Breidd: 180 Hæð: 250 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Sveitarfélagið Stykkishólmur, Sveitarfélagið Stykkishólmur
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Tækniminjasafn (T)
Efnisorð / Heiti