Trafakefli
1687

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Ellen Marie Magerøy 1956:
1. 35.134. Trafakefli úr beyki. Hönd á öðrum endanum, snúið handfang með kúlu á endanum á hinum. Gerðin er með þremur teningum, eru þeir gerðir ávalir að ofan. Lækkuðu bilin á milli þeirra eru með afsneiddum köntum. L. 57.8, br. 7.5, h. 4.5.
2. Óskemmt. Ómálað. 46. mynd. 14.Z.z.
3. Innskornar línur fylgja snúningnum á öðru handfanginu. Mjó, laufskorin líning er við höndina. Lágt upphleyptir bandabrugðningar eru á teningunum; eru þeir reglubundnir og samhverfir með innri útlínum og smáskurðum. Miðteningurinn hefur þrjár tungur af holjárnsstungum á hvorri hlið. Lækkuðu bilin hafa á efri fletinum teinungsbúta. Stönglarnir eru ávalir að ofan og skorið tiltölulega djúpt niður milli þeirra (um 5 mm). Vafningarnir enda í eins konar stórum blómum (eða ávöxtum) með mörgum smáskurðum í. Smáblöð og undningar fylla út meðfram köntunum. Á skáflötunum eru upphleyptir latneskir upphafsstafir og á hliðarflötunum innskornir latneskir
46. mynd)
upphafsstafir og ártal. Sem útfylling aftan við ártalið er lágt upphleyptur bekkur af snúnum böndum. - Mjög laglegt og vel gert verk.
4. Ártal: 1687.
5. Áletrun:
OSKA / EG / ÞYDRE / AV
DAR / SLOD / SEM / EIGNA (upphleypt)
ST KIEFLINN ÞESSE AD HNNE VEITIST GLÆFANN GOOD
GVD HANA SIALFUR BLESSE G E A R ANNO 1687
6. L: Gjöf frá B. Thorberg amtmanni í Reykjavík til fil. kand. R. Arpi 23. 11. 1882.
8. Afbildningar pl. 9, fig. 43. Peasant Art, fig. 67.
Matthías Þórðarson 1918:
Trafakefli. Efni bæki. L. 58, br. 7,5, þ. 4,2 cm. um beltin, 3,4 milli þeirra. Sjá Afb. 2-3, Pl. 9, 43 a-c (m. texta). Gefið safninu af Bergi Thorberg og komið frá R. A. 23.XI.1882.
Freyja Hlíðkvist Ómarsdóttir Sesseljudóttir, 2025:
Yfirkefli.
Ártal 1687.
Keflið var um tíma í eigu Bergs Thorbergs amtmanns og landshöfðingja (f. 1829, d. 1886) en uppruni er óþekktur.
Áletrun með latneskum hástöfum á hliðum og að ofan:
OSKA EG ÞYDRE AV
DAR SLOD SEM EIGNA
ST KIEFLENN ÞESSE AD HENNE VEITIST GIÆFANN GOOD
GVD HANA SIALFUR BLESSE. G.E.A.R. ANNO 1687
Þ.e.:
Óska ég þýðri auðar slóð
sem eignast keflin þessi,
að henni veitist gæfan góð,
Guð hana sjálfur blessi.
G. E. A. R. (óljóst hvað þessir stafir merkja, G. E. gætu verið upphafsstafir þeirrar sem keflið átti, þá G... E...dóttir á [með] réttu)
Anno 1687.
Lengd 58,1 cm; Breidd 7,6 cm; Hæð 4,4 cm.
Viðartegund: beyki.
Keflið var gefið til Nordiska Museet í Stokkhólmi árið 1882 og fékk þar númerið NM 35134. Það kom svo þaðan til Þjms. árið 2008 og var skráð með þeim gripum sem fluttir voru til framtíðarvarðveislu í Þjóðminjasafninu. Nýtt númer þess er Þjms. 2008-5-81.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Bergur Ólafsson Thorberg
Ártal
1687
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: NMs-35134
Safnnúmer B: 2008-5-81
Stærð
57.8 x 7.5 x 4.5 cm
Lengd: 57.8 Breidd: 7.5 Hæð: 4.5 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Nordiska Museet (NMs)
Undirskrá: Nordiska Reykjavík (NMs)
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Trafakefli
Heimildir
Ellen Marie Magerøy. Íslenskur tréskurður í söfnum á Norðurlöndum. Árbók hins íslenzka fornleifafélags 1957-1958. Reykjavík 1958. Bls. 110.
Matthías Þórðarson. Handskrifuð skrá, óútgefin.













