Fuglaháfur
Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Þorsteinn Víglundsson
lét smíða handa safninu og sendi (er keypt): Háfur og snara úr Vestmannaeyjum.
a. Fuglaháfur. Skaft, langt mjög, úr furu, og tvær eikarspækur, festar
á að framan, milli þeirra háfpoki, net úr grönnum bómullarþræði. L., mælt
að jaðri háfs að framan, um 4 m 93 sm. Innst er pokinn bundinn upp undir
skaftendann, möskvarnir við hliðar settir á spækur, en að framan hangir
netið í bandi milli enda á spækunum. Háfstöngin er um 3 m 76.5 sm á l.,
frammjó, hliðar flatar að ofan og langt fram eftir, en ávalar brúnir milli,
og snúa þær upp og niður, á framhluta verður ekki lengur greint milli kinna
og brúna, og um hálfan m. frá enda er næstum sívalur kafli, fremst er stöngin
ferstrend, endinn gerður valstrendur (?) og úr tekið umhverfis um 2.5 sm
upp. Fremst snýr stöngin lóðrétt við, en veit nokkuð á ská aftan sívala
kaflans. Þvm. mest við enda að aftan, 4.8 sm, en minnst við
framenda, 1.6 sm. Við samskeyti lás úr látúni, og hann um 9 sm uppi á stöng.
Þetta ferstrendur hólkur, liðl. 4 sm á l., og ganga út frá honum á hvora
hönd stuttir, holir armar, ferstrendir, sem vita fram, eru þeir sömu megin
og kinnar á stöng að aftan, l. innan við 4 sm, í þá er stungið spækunum
tveimur, en stálnagli rekinn gegn á báðum stöðum, lóðrétt, á nöglum krókauga,
er veit niður, og grannt snæri bundið á milli. Trégreip tengir enda skafts
og spækurnar við háfpoka, lítil, þunn fjöl úr eik, sveigð nokkuð og vita
endar aftur, en á þeim bogsnið, l. um 16.8 sm, br. nál. 2.7 sm að jafnaði,
en þ. um 1 sm. Með þremur götum, eitt í miðju, en tvö á hvora hönd, og
ganga hér í gegn skaft og spækur. Þétt framan við nagla úr stáli í stangarenda.
Báðar spækur ferstrendar og mjókka og þynnast fram, en endar
að framan bogadregnir og vita upp og niður. L., mælt frá brún láshólka,
er liðl. 1 m 31.5 sm, br. innst um 1.4 sm og þ. um 1.3 sm, og fremst er
br. um 1.2 sm, en þ. um 0.3 sm. Skörð í brúnir að ofan og neðan um 0.8
sm frá endum, gerð fyrir frambandið. Haf enda á milli rúml. hálfur m.
Áhald þetta er málað grænt. Látúnslás ómálaður, net óslitið. Snotur
gripur. Örlítið meiðsl má sjá á skafti. b. Snara.
Furuskaft með stálteini við annan enda og hangir snara í. Beygt er auga
á teininn fremst, í því mjótt snæri, og á enda þess lítill járnhringur.
Skaft frammjótt, tæpl. 3 m 13 sm á l., þvm. mest um 3.8 sm, minnst um 2
sm. Að aftan og drjúgan spöl fram eru á því flatar hliðar og ávalar brúnir
milli, en því næst er lagið sívalt. L. teins tæpl. 54 sm, mælt beint, en
hann svignar nokkuð, br. mest að aftan, 0.9 sm, og teinninn hér flatur,
en mjókkar fram, og lagið sívalt framan enda á stöng, minnst þvm. 0.4 sm.
Snörubandið um 45 sm á l. Hringur um 3.4 sm að þvm. Teinninn festur með
þremur látúnsskrúfum á flata, sem heflaður er á stöngina. Stöngin grænmáluð.
Ryð á teini og hring. Sbr. Árbók Ferðaf. Íslands, 1948, bls.
31-32 og bls. 36.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Þorsteinn Þ. Víglundsson
Safnnúmer
Safnnúmer A: 15499
Safnnúmer B: 1954-132
Stærð
493 x 0 x 0 cm
Lengd: 493 Breidd: 0 Hæð: 0 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Fuglaháfur