Legsteinn

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
a. Legsteinsbrot, úr sams konar
efni og er í næsta nr. á undan, óreglulegt í lögun, en þó með tveimur nokkurn
veginn sléttum flötum. Mesta lengd 35.6 sm, mesta breidd 15.8 sm. Á einum
stað má greina: HUSAF. Aftan við síðasta stafinn er brotflötur. Þriðji
stafur, sem hér hefur verið leitazt við að teikna, er líklega S. Kynni
að hafa staðið hér Húsafell. b. Legsteinsbrot, úr sams konar
efni og í næsta skráða hlut hér á undan. Óreglulegt í lögun, en ein brún
nokkurn veginn slétt og þar mjög máðar leifar leturflatar. Mesta lengd
28.2 sm, mesta br. 22.3 sm. Sbr. næstu nr. hér á undan. c.
Legsteinsbrot úr sams konar efni og í næstu nr. hér á undan. Öll lengd
nálægt 66 sm. Á steinbroti þessu eru leifar af fimm flötum. Grafnir stafir
sjást á tveimur flatanna, en áletrunarleifar þessar eru óverulegar.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Kristófer Stefán Scheving Ólafsson
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 15017
Safnnúmer B: 1951-264
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Legsteinn





















