Garðahúfa
1860

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Garðahúfa úr grænrósóttu
silki, með svörtum flujelsborða neðzt og svörtum flujelsböndum, sem mynda
tígla á báðum hliðum. Ofaná brúnunum eru rauðir silkiborðar og hvítir
kniplingar á og framaní, en aptaní er sem dálítill ljereptspungur og úttroðinn
hnöttur apturúr og yzt eins konar blóm, margsamsett. Í boga
efst á báðum hliðum, uppi við brúnirnar eru garðarnir, svartir , úr silki,
sívalir og úttroðnir, með sauðsvartri ull, um 38 cm. að l. og 2,2
cm. að þverm. Að innan er húfan fóðruð með hvítu ljerepti, gróf gerðu.
Kollurinn gengur út í odda fremst og aptast, en er bogamyndaður út
til beggja hliða, um 27 cm. að l. og 17 að br.: brotin saman eptir miðju.
Hvor hlið er hálfhringlumynduð og jafnframt eru þær bogadregnar dálítið
að neðan: um 20 cm. að hæð og um 26 cm. að l. Húfan er íslenzk
og líklega frá því um 1860, þá báru ýmsar eldri konur í Svarfaðardal og
fyrir vestan slíkar húfur. Ein brúður bar þess konar húfu fyrir
vestan sumarið 1868(S.V.aths við lýsingu sína á nr. 279). Fleiri
líkar eru til í safninu, sbr. nr. 279, 2052 og 4509.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Konráð Maurer Ólafsson
Ártal
1860
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 2457
Safnnúmer B: 1883-306
Stærð
38 x 2.2 x 0 cm
Lengd: 38 Breidd: 2.2 Hæð: 0 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Garðahúfa