Krossmark, sem skartgripur

1500 - 1600
Úr aðfangabók: Krossmark úr tré. Það hefir verið málað, og er með gylltum dúk um miðjuna og gylltri þyrnikórónu. Það er frá fimtándu eða sextándu öld. Það hefir, að því er sira Guðmund minnir, fundizt undir gólfþiljum Staðarkirkju, er hún var gjör upp síðast. Kirkjur Íslands, 7.bindi, bls. 125-6: Róða, mynd Krists á krossi [...], mjög lítil, hæð aðeins 17cm, en vantar nú handleggina og krossinn sjálfan. Myndin hefur verið máluð og lendaklæðið og þyrnikórónan gyllt. Róðan er í gotneskum stíl, og talin helzt frá 15. eða 16. öld, gæti verið gerð með róðu af Limoges-krossi sem fyrirmynd. Myndin er sögð fundin udnir gólfþiljum kirkjunnar, þeirrar er rifin var 1855. Churches in Iceland: Crucifix [...] in the Gothic style. Believed to date from the 15th or 16th century. Height of cross 17 cm. Found beneath the church which was demolished in 1855. (Sett inn af Sigrúnu Blöndal, 29.4.2011)

Aðrar upplýsingar

Ártal
1500 - 1600
Safnnúmer
Safnnúmer A: 262 Safnnúmer B: 1865-70
Stærð
17 x 3.5 cm Lengd: 17 Breidd: 3.5 cm
Staður
Staður: Staðarkirkja í Steingrímsfirði, Kirkjan, 510-Hólmavík, Strandabyggð
Sýningartexti
Kristsmynd, róða af krossi, úr tré, hefur verið máluð, lendaklæði Krists er gyllt og hann ber gyllta þyrnikórónu. Frá 15. eða 16. öld, fannst undir gólfi Staðarkirkju í Steingrímsfirði. Spjaldtexti: Kristsmyndir af róðukrossum, krossar og krossfestingarmynd. Sumt er úr kirkjum en annað verndargripir sem fólk hefur borið á sér. Crucifixes, some from churches, others worn as talismans.
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Heimildir
 Kirkjur Íslands. 7. bindi.   Ritstjórar: Jón Torfason, Þorsteinn Gunnarsson.   Reykjavík, 2006.

Upprunastaður

65°46'1.8"N 21°50'39.9"W