Líkkistuskjöldur

1819
Líkkistuskjöldur af kistu Páls Jónssonar klausturhaldara, úr silfri. Vafalaust eftir Þorgrím Tómasson, sbr. skildina Þjms. 5602 og 6254 sem eru víst eftir hann (en ekki eftir Jón Jónsson á Elliðavatni, silfursmið, sem átti ekkju Páls eins og ætlað var í fyrstu). Skjöldurinn var á útsagaðri fjöl sem fylgir að mestu og virtist Jónasi sem skjöldurinn hefði verið lagður í kistuna, ofan á brjóst líksins, en ekki settur á kistulokið. Skildinum fylgja tveri silfurnaglar. - Sjá um skjöldinn í Árbókum Espólíns. Eftirfarandi áletrun er grafin á skjöldinn: haf í minni Jesum Kristum hvör aptur er upprisinn frá daudum og nem þú stadar, dygdelskandi madur, vid þessar moldir. og adgiæt ad hér bídur, í trú öruggur, upprisu Réttlátra Paúll Johnsson fæddur þann 29da Marte 1737, Hospítalshaldari í 19, Klausturhaldari Kirkiubæar Klausturs Vid 30 ár og tvisvar um tíma, settur Sÿslumadur í Gullbríngu og Kiósar Sysslumm, fyrst giptur Árid 1761 Valgérdi Þorgeirsdóttir sem fra honum deidi Árid 1793, en aptur 1794 Ragnheidi Gudmundsdóttir nú eptir þrejandi; hann deidi á Ellidavatni þann 8da Febrúar 1819 og var þá 20 Afkomenda ástríkur fadir, Afi, og Lángafi, Verid hraustir og hugdiárfir þér allir sem vonid á Drottinn og  vakid fyrir því þér vitid ecki, á hvada Stundu ydar herra mun koma. Hiartkiærum födur hriggur setti Páll Pálsson

Aðrar upplýsingar

Þorgrímur Tómasson, Hlutinn gerði
Gefandi:
Jónas Magnússon
Ártal
1819
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1968-412
Stærð
26 x 15.8 cm Lengd: 26 Breidd: 15.8 cm
Staður
Staður: Gufunes, Reykjavíkurborg, Gufunes, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Fundaskrá Undirskrá: Fundaskrá_Lausafundir
Efnisorð / Heiti
Heimildir