Bollasteinn, sem kirkjugripur

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Bollasteinn úr grágrýti,
nokkurn veginn ferhyndur og eru 2 hliðar þó allmjög bognar og horn sljó:
ummál efst 152cm.: hæð um 22 cm. Hann er totumyndaður niður og stendur
ekki lárjettur nema skorðaður sje. Í hann er höggvin kringlótt skál, um
30 cm. að þverm. efst og um 10 cm. að dýpt í miðju: fláir hún allmjög.
Steinninn er allvel jafn að utan og svo sem ísnúin eða lábarinn. Skálin
er og vel sljett innan. Vafasamt er til hvers bollasteinn þessi hefir verið
ætlaður eða notaður, hvort heldur sem mortjer eða vatnsskál og hafi hið
síðara verið, hvort hann þá hafi heldur verið veraldleg mundlaug eins og
fleiri slíkir bollsteinar virðast með vissu hafa verið, eða hann hafi verið
vatnssteinn fyrir vigsluvatn að kirkju: á það bendir nokkuð staður sá sem
S.V. segir að hann sje frá: Steinninn er frá Kirkjubóli þar. Nú eru 4 Kirkjubólin
í Önundarfirði: Sela - Kirkjuból er næst Flateyri, opt kallað Selaból,
en líklega á S.V. ekki við það: öllu heldur á hann við Kirkjuból í Korpudal,
fyrir innan fjarðarbotninn: hin 2 eru hinz vegar við fjörðinn, í Bjarnadal
og Valþjófsdal. Sbr.nr. 1929.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Torfi Halldórsson
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 2068
Safnnúmer B: 1882-28
Stærð
152 x 22 x 0 cm
Lengd: 152 Breidd: 22 Hæð: 0 cm
Staður
Staður: Kirkjuból í Korpudal, Ísafjarðarbær, Korpudalur í Önundarfirði, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Bollasteinn, sem kirkjugripur
Upprunastaður
65°59'2.8"N 23°20'21.3"W