Skál

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Silfurskál, forn.
Er hún kringlótt í laginu og kúpt, og með stút við barm, rúmlega
38 cm að þvermáli, hæð 15 cm liðlega, en þykkt að jafnaði 1 mm. Við
barma skálarinnar er kveikt breið ræma, sem sveigist inn fyrir, mjór strimill
yfir samskeytum að innan, og höfð bryggja, ávöl, á brún. Stuttur
og breiður stútur gengur fram við skarð, sem gert er í barma, hann með
ákveiktu vari á brún, ávölu og íbjúgu til beggja enda. Þvermál á
börmum innan við 3 cm, og bugðan 2,3 cm á breidd, stútur 16,9 cm á breidd,
og lengd liðlega 4 cm. Sjá má þrjú för að neðanverðu á skálinni,
eru tvö að framan, og eitt að aftan, fjarlægð frá barmi mest 7 cm. Hér
leifar kveikingar og munu þetta samskeyti fóta. Falleg smíð. Skál
þessi kynni að vera forngrísk eða fornrómversk að uppruna. All mjög
beygluð og hefur núist nokkuð utan, sprungur víða og neðan við stút er
gat í gegn, skör hefur losnað á einum stað, skálin með spanskgrænuhúð,
og dökk mjög og gljáandi á ytri hlið. Þegar hún kom, voru á henni
óhreinindi, er bentu til að hún hefði legið í hænsnastíu. Gefandi
hirti hlut þennan síðastliðið sumar í rusli, sem ónafngreindur maður hafði
flutt á bíl til sorpeyðingarstöðvar bæjarins að Ártúnshöfða.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Kristján Ólafsson
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1961-150
Stærð
38 x 15 x 1 cm
Lengd: 38 Breidd: 15 Hæð: 1 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Fundaskrá
Undirskrá: Fundaskrá_Lausafundir
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Skál