Taflteningur

1600 - 1700
Taflteningur úr grænleitum steini, með 6 jafnhliða og rjetthyrndum flötum, sem á eru grafnir stafirnir LS - TA - NG - ZS - ND - NH, og 12 flotum aflöngum og rjetthyrndum, sem eru eins og brúnafletir á milli hinna, og eru á þeim augu eða smáhringar með depli innaní, 1-12. Á öllum hornunum 8 eru og jafnhliða og þríhyrndir smáfletir, en ekki eru merki á þeim. Þverm. um aðalfleti 2,5 cm., um brúnafleti 2,7 cm. Sbr. nr. 93, sem eru eins að kalla, dálítið stærri. Er óvíst að svo stöddu við hvaða teningartafl þessir taflteningar hafa verið notaðir. Þeir virðast vera frá 17. öld og eru líklega útlendir að uppruna. -Þessi fannst undir gömlu búðinni (þ.e. í Stykkishólmi) er hún var rifin: hún mun hafa verið frá konungsverslunar-tímanum.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1600 - 1700
Safnnúmer
Safnnúmer A: 2117 Safnnúmer B: 1882-79
Stærð
2.5 x 2.7 x 0 cm Lengd: 2.5 Breidd: 2.7 Hæð: 0 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Sveitarfélagið Stykkishólmur, Sveitarfélagið Stykkishólmur
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Taflteningur