Brúðarkjóll

1964
Brúðarkjóll úr hvítu satínefni. Hann er ermalaus, aðsniðinn í mittið og með fellingum í pilsinu. Við mittið að framanverðu er næld rós sem er úr sama efni og kjóllinn. Kjóllinn er renndur í bakið og fóðraður með hvítu fóðri. Gefandi er Ólafur Axelsson, starfsmaður Minjasafns Reykjavíkur. Kjóllinn er brúðarkjóll konu hans, Ruthar Höllu Sigurgeirsdóttur, sem lést 1. ágúst 2007. Þau giftu sig í Neskirkju 14. nóvember árið 1964. Prestur var herra Ólafur Skúlason. Þetta var systrabrúðkaup, því systir Ruthar, Ólöf Jóna (f. 16.9.1944) giftist þá Jóni Sigurðssyni (f. 8.12.1941). Brúðkaupsveislan var haldin að Rauðagerði 6 í Reykjavík. Ólöf Jóna hannaði kjólinn (þær systur voru í samskonar kjólum) en saumakona var frænka þeirra systra, Ruth Kristjánsdóttir (f. 31.8.1930). Með kjólnum fylgir ljósrit af ljósmynd af brúðhjónunum (það er geymt í möppu: Fylgiskjöl aðfangabókar) Þar má sjá að þær systur klæðast síðum kjólum úr blúnduefni yfir kjólana og eru með slör. Þessir gripir fylgja ekki kjólnum og eru væntanlega glataðir. Smávegilegir blettir eru í kjólnum en annars er hann í mjög góðu ástandi.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1964
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2009-33
Stærð
101.5 x 0 x 0 cm Lengd: 101.5 Breidd: 0 Hæð: 0 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Brúðarkjóll