Sverðfetill

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Tvær lengjur úr kopar eða bronzi, önnur þeirra er slétt með fjórum götum með járnryði í, en hin er með 6 upphleuyptum bólum í einni röð, en aptast hafa verið 4 bólur samhliða: á hinum endanum að framan hefir verið klauf, 1/3 úr þuml. á lengd, og eins hefir verið á hinni lengjunni: lítur svo út, sem báðr lengjurnar hafi verið samfastar, og beygðar saman að framan utan um ólar-enda, og síðan hnoðaðir í gegnum allt saman 4 járnnaglar, til að halda öllu saman: líka sést járnryð innan í beygíngunni báðum begin við klofana, og hygg eg því, að framan við ólina í beygíngunni á báðum lengjunum hafi veri lítil járnhríngja, sem sé ryðguð burt, og hafi þornið staðið fram í gegnum klaufina. Lengjurnar eru 3 þuml. á lengd og rúmlega hálfur á breidd. Ekki er ólíklegt, að þetta sé eitthvað af sverðfetlunum.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Sigurður Brynjúlfsson Sivertsen
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 641
Safnnúmer B: 1868-231
Stærð
8.4 x 1.4 cm
Lengd: 8.4 Breidd: 1.4 cm
Staður
Staður: Hafurbjarnarstaðir, Suðurnesjabær
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Fundaskrá
Undirskrá: Fundaskrá_Lausafundir
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Sverðfetill
Upprunastaður
64°4'11.4"N 22°42'0.1"W
