Trébútur, hluti af vopni

900 - 1000
Margir stórir trébútar, sem hafa drukkið í sig ryð. í einum bútnum sjást þrjár beintönnur digrar, líklega úr hárgreiðu, þar sést og far eptir þrjá, sem hafa dottið burt, um leið og hlutirnir hafa verið teknir upp. Bútarnir eru tæpur þumlúngur á þykkt alls, og virðist að hafa verið neglt þunnt tvöfalt járn, til samans 1/4 á þykkt, með einhverju á milli, utan á þá alla annars vegar, sem sést greinilegast, þegar maður brýtur af þeim: nagli stendur og í gegnum einn bútinn og bæði járnin. það er valt að ákveða með vissu, af hverju þessir bútar eru. en þó þykir mér líklegast, að þeir sé leifar af skildi, sem hafi verið tvíbyrður með þunnu járni, og að þeir fjórir naglar með rónum sé úr mundriðanum, eða skjaldarfetlinum? Lengd þeirra samsvarar þykt trébútanna. Mér þykja þeir að eins of óvandaðir, sem eg síðar skal tala um.

Aðrar upplýsingar

Ártal
900 - 1000
Safnnúmer
Safnnúmer A: 568-f Safnnúmer B: 1868-143
Staður
Staður: Hafurbjarnarstaðir, Suðurnesjabær
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Fundaskrá_Munir Undirskrá: Fundaskrá
Efnisorð / Heiti

Upprunastaður

64°4'11.4"N 22°42'0.1"W