Hnífur, óþ. notk.

1600 - 1700
Hnífur, ekki heill: skaptið steypt úr kopar, 7,5 cm. að l., br. um 2, er það líkneski af karlmanni á stuttbuxum með verju við vinstri hlið, húfu allháa, eða hatt lingerðan, á höfði: hann heldur báðum örmum um eitthvað á brjósti sjer, kann að vera belgpípa, sem hann leikur á. Blaðið er úr járni, hefur verið eineggjað og þunngert, og er allur fremri hluti þessi brunninn af: að eins 3,8 cm. eptir. Sennilega mathnífur frá 17. öldinni öndverðri. - Sendur safninu til kaups 15. 7. 1902, en ekki keyptur nje skrásettur eða tölumerktur fyr en nú, eptir að sendanda, herra Eyjólfi Guðmundssyni í Hvammi, hafði verið sendur fyrir hann Leiðarvísir 16. 10. 1915. - Eyjólfur skrifar með hnífnum að hann sje fundinn úti í flóa, við eða nálægt þjóðveginum. - Mörg hnífskepti til önnur í safninu með mannslíkneskjum, steypt úr kopar: öll útlend að gerð.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1600 - 1700
Safnnúmer
Safnnúmer A: 7352 Safnnúmer B: 1916-335
Stærð
7.5 x 2 x 0 cm Lengd: 7.5 Breidd: 2 Hæð: 0 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti