Skíðastafur

1901
Skíðastafur úr askvið(?), eftir sama mann, 171 sm. niður að broddi, 10 - 11 sm. að ummáli að ofan um 12 sm. að neðanverðu: sívalur að ofan, en 8 kantaður að neðanverðu: 4 þuml. langur járnhólkur gengur upp á skaftið að neðanverðu, neðan í honum er þykk járnplata og upp í hana gengur broddurinn, sem er liðugir 14 sm. á lengd, ferstrendur efst, 8 strendur og mjórri um miðjuna og þá ferstrendur fram í odd. 1) Á lofti.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1901
Safnnúmer
Safnnúmer A: 4806 Safnnúmer B: 1901-26
Stærð
171 x 12 x 0 cm Lengd: 171 Breidd: 12 Hæð: 0 cm
Staður
Staður: Hraun 2, 570-Fljótum, Skagafjörður
Sýningartexti
Skíðastafur, broddstafur, úr askviði að virðist. Stafi sem þennan höfðu skíðamenn til að ýta sér með og einnig stýra sér er farið var niður brekkur, virðist reyndar stafurinn líkur venjulegum göngustöfum eins og þeir gerðust fyrrum. Einnig höfðu menn svona stafi þegar farið var á ísleggjum. Stafurinn er smíðaður af Einari B. Guðmundssyni á Hraunum í Fljótum, d. 1910, um árið 1900 og fylgir skíðum úr eik, sem hann smíðaði einnig. Virðist hann hafa gert þessa hluti beinlínis fyrir safnið en alveg eins og þeir gerðust þarna enn á þeim tíma. Fljótamenn voru alþekktir skíðamenn, enda er þar fannfergi meira en annars staðar á landinu og fóru menn mest um á skíðum að vetrinum. Þaðan komu margir þekktir skíðaíþróttamenn fram eftir 20. öld. 4806 Skíðastafur, broddstafur, úr askviði að virðist. Stafi sem þennan höfðu skíðamenn til að ýta sér með og einnig stýra sér er farið var niður brekkur, virðist reyndar stafurinn líkur venjulegum göngustöfum eins og þeir gerðust fyrrum. Einnig höfðu menn svona stafi þegar farið var á ísleggjum. Stafurinn er smíðaður í Fljótum á Norðurlandi um árið 1900 og fylgir skíðum úr eik. Virðast þessir hlutir vega gerðir beinlínis fyrir safnið en alveg eins og þeir gerðust þarna enn á þeim tíma. Fljótamenn voru alþekktir skíðamenn, enda er þar fannfergi meira en annars staðar á landinu og fóru menn mest um á skíðum að vetrinum. Þaðan komu margir þekktir skíðaíþróttamenn fram eftir 20. öld. 4806 Spjaldtexti: Ýttu menn sér síðan áfram með broddstaf. A spiked staff was used for propulsion.
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Skíðastafur

Upprunastaður

66°5'51.2"N 19°4'28.4"W