Snjósokkur

1901
Snjósokkar, svartbláir, úr togi, með garðaprjóni (?), neðan í þá er saumað til hlífðar þykkur prjónaður leppur: ofan til í hvorum sokk er snúra til að reyra sokkinn fastan um legginn. Sokkarnir ná meðalmanni á hné: eru slíkir sokkar oft notaðir af skíðamönnum utan yfir skó til að hindra að snjór fari ofan í skóna og þiðni þar. Frá sama stað. 1) Á lofti.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1901
Safnnúmer
Safnnúmer A: 4808 Safnnúmer B: 1901-28
Staður
Staður: Hraun 2, 570-Fljótum, Skagafjörður
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Snjósokkur

Upprunastaður

66°5'51.2"N 19°4'28.4"W