Steinn, óþ. hlutv.
900 - 1400

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Aflángur steinn,
útlendur, er Danir kalla fidsten, og er hann í tveim pörtum. Nú er
hann einkum hafður til að bræða í gull, en til hvers fornmenn hafi haft
hann, læt eg ósagt. Þessir síðast töldu gripir (nr.96-99) fundust
austur í Þjórsárdal (Þjórsárdalsfundur) og var Finni Magnússyni send lýsing
á fundinum, en eigi hefi eg séð neina skýrslu um hann prentaða. Talið
er, að Þjórsárdalur hafi lagzt í eyði af eldi úr Rauðkömbum 1344 (Espól.Árb.
I, 78), og kemur það heim við annála Jóns Egilssonar (Safn til sögu Íslands
I, 32), að það hafi verið í tíð Jóns biskups Sigurðssonar (1343-48), en
hvort sem þessir gripir hafa fólgizt í jörðu við þann atburð eða eigi,
þá eru þeir eflaust úr heiðni eða frá söguöldinni. Nistin (nr.96),
sem munu vera af kvenmannsbúníngi, benda á, að hér muni hafa verið grafin
saman karl og kona.* * gripum þeim, sem hér eru taldir nr.
96-99, hefir verið lýst í Þjóðólfi XVI, Nr. 37-38, bls. 155-156.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Sigurður Eiríksson Sverrisson
Ártal
900 - 1400
Safnnúmer
Safnnúmer A: 99
Safnnúmer B: 1864-57
Stærð
4.03 x 2.5 x 2.14 cm
Lengd: 4.03 Breidd: 2.5 Hæð: 2.14 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Fundaskrá
Undirskrá: Fundaskrá_Lausafundir
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Steinn, óþ. hlutv.