Kerti

2006
Hvítt kerti í plasthólki sem er innan í öðrum plasthólki með einskonar bumbu og gylltu málmloki. Kertið er hugsað til að setja á leiði. Það er nýtt og ónotað. Gjöf frá Ellingsen, Grandagarði (þá), Reykjavík, 16.2.2006. Öllum gripunum sem skráðir eru á númerið Þjms. 2006-26 safnaði Ágúst Ó. Georgsson í tengslum við samtímarannsókn sína á þeim sið að setja ljós á grafir og kveikja á þeim („ljósin á gröfunum“). Rannsóknin var liður í undirbúningi að gerð sýningar um andláts- og útfarasiði sem fyrirhuguð var í Bogasal.

Aðrar upplýsingar

Gefandi: Ellingsen
Ártal
2006
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2006-26-6
Stærð
17 x 10.6 x 0 cm Lengd: 17 Breidd: 10.6 Hæð: 0 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Kerti