Grefblað
850 - 1000

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Grefblað úr járni, 19,1 cm að l., 12 cm að br., beygist nokkuð fram á við niður eftir. Efst hefur það verið beygt um flatt skaft og þar er það 8,2 cm. Að öllu leyti líkt nr. 11176 frá Bólstað og mun vafalaust fornt. - Fannst niðri við möl, suðaustarlega í grunninum.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Steindór Sigurbjörn Gunnarsson
Ártal
850 - 1000
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 13357
Safnnúmer B: 1944-233
Stærð
19.1 x 0 cm
Lengd: 19.1 cm
Staður
Staður: Tjarnargata 4, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Sýningartexti
Blað af grefi eða eins konar pálblað, til að grafa með eða pæla eins og nafnið bendir til. Fannst neðst í fornum mannvistarlögum í Tjarnargötu 4 í Reykjavík sumarið 1944, er grafið var þar fyrir stórhýsi. Þar og víðar á því svæði hafa fundist margvíslegar mannvistarleifar, sem taldar eru frá elstu byggð í Reykjavík og tímasettar til 9. og 10. aldar og mun þetta gref frá þeim tíma.
13357
Blað af grefi, fundið í miðborg Reykjavíkur árið 1944, þar sem upp komu margvíslegar fornar mannvistarleifar, sem tímasettar eru til 9. og 10. aldar og eru meðal elstu byggðarleifa á Íslandi.
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Grefblað
Heimildir
Þorleifur Einarsson og Þorkell Grímsson: Fornminjar í Reykjavík og aldursgreiningar. Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1969, 80-97.
Upprunastaður
64°8'49.1"N 21°56'33.2"W
