Lýsislampi

1920
Lýsislampi, smíðaður úr kopar, með venjulegu lagi. Hæð hans 18,4 cm, breidd mest 7,8 cm, lengd 10,7 cm, gaddurinn 12,6 cm á lengd, og lengd nálar 9,6 cm. Hanki og sproti efri skálarinnar festir með koparnöglum, beygjast nokkuð fram og gert loftverk á. Í keðju nálarinnar fimm flatir hlekkir. Lampi þessi er líklega smíðaður eftir 1920. Með rispum og dældum, hanki skekktur lítið eitt, bót er í efri skálinni að aftanverðu og kveiking á botni hinnar neðri.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1920
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1963-71
Stærð
18.4 x 7.8 x 10.7 cm Lengd: 18.4 Breidd: 7.8 Hæð: 10.7 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Lýsislampi