Helgríma

Helgríma, fundin upp og smíðuð af Dbrm. Einari B. Guðmundssyni (sjá grein hans í Ísafold...) í því skyni að lögð yrði niður slátrunaraðferð sú á sauðfé og stórgripum (skurðurinn og svæfingin), er nú á sér stað. Verkfæri þetta er ætlað til þess að rota með sláturfé: það er úr leðri, í lögun eins og andlit sauðkindarinnar og er svo til ætlast að það hylji það, svo að kindin verði einskis vör, þegar höggið ríður að. Að neðanverðu er ól með hringju til að spenna grímuna niður fyrir kjálkana. Efst á grímunni miðri er svo sjálft rotunarverkfærið. Það er sívalingur úr járni c. 9 sm. langur og 1 sm. að þvermáli með hatt eða skalla að ofan til að slá á, 2 sm. að þvermáli og slétt eða lítið eitt kúpt í neðri endann. Utan um þennan sívaling er járnhringur, sem að neðan verðu (næst leðrinu) myndar plötu 5½ sm. að þvermáli og liðl. ½ sm. á þykt, innan á leðrinu er svo önnur plata jafnstór, en þynnri, plöturnar eru svo skrúfaðar saman með 3 skrúfnöglum. Upp úr grímunni (leðrinu) gengur hak og er þar á saumað leðuról 20 sm. löng, er hún notuð til að halda grímunni að enninu á kindinni þegar hún er rotuð (c. ólinni haldið aftur á milli eyrnanna). Sívalingurinn er dreginn út, eins langt og hann kemst, gríman fest á kindina og því næst slegið með sleggju á skallann, fellur þá kindin til jarðar dauðrotuð við fyrsta högg. Verkfæri þetta var fyrst með brodd á endanum, en reyndist ekki bráðdrepandi og breytti því Einar til síðar og hafði standinn sléttan.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: 4809 Safnnúmer B: 1901-29
Stærð
9 x 1 x 0 cm Lengd: 9 Breidd: 1 Hæð: 0 cm
Sýningartexti
Helgríma til slátrunar sauðfjár. Er hún kom til síðla á 19. öld lagðist niður að skera fé. 4809 Helgríma til slátrunar sauðfjár.
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Helgríma