Mynt
1654

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Danskur silfurpeningur, tvö mörk,
frá 1654, þegar Friðrik III (f. 1609, d. 1670) var konungur (1648-1670).
Á annarri hliðinni er skjaldarmerki Friðriks III, F sem er yfir tölustafnum
3 og kóróna þar fyrir ofan. Umhverfis skjaldarmerkið stendur: II : MARCK
: DANSKE : 1654. Á hinni hliðinni er mynd af ljóni og umhverfis stendur:
DOMINUS PROVIDEBIT. Gefandi fann peninginn árið 1941. Hann var grafinn
úr jörðu undan gömlu verslunarhúsi á Skagaströnd. Peningurinn var á um
50 cm dýpi. Þetta var á svæði þar sem bændur voru áður með hesta í kaupferðum.
Gefandi er Hans R. Berndsen. Hann
kom með báða gripina nr. Þjms. 2008-55 á svonefndan greiningardag í Þjóðminjasafninu
þann 9. nóvember 2008 og vildi afhenda þá safninu til varðveislu.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Hans R Berndsen
Ártal
1654
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2008-55-2
Stærð
3.4 x 0.2 x 0 cm
Lengd: 3.4 Breidd: 0.2 Hæð: 0 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Sveitarfélagið Skagaströnd, Sveitarfélagið Skagaströnd
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Mynt
