Brjóstnæla

900 - 1000
Tvö nisti eða spennur (möttulskildir) úr bronzi (kopar blending).  Þau eru sporöskjulöguð og hvelfd.  Í þeim báðum innanverðum hefir verið járnþorn, til þess menn gæti nælt saman með öðrum þeirra klæði sín, ef vildi, eða haft þau fyrir feldardálka.  Sextán göt eru boruð gegnum röndina á þeim, til þess hægt væri að sauma þau á klæði sín til skarts, ef vildi: má af því sjá, að það eru möttulskildir, er festir voru á möttulinn, þar sem tygillinn var festur í.  Þegar skildir þessir fundust, loddi enn grænt klæði (af möttli?) innan í öðrum þeirra eða báðum.  Ofan á skjöldunum er laus grind, sem negld er á með fjórum járnnöglum.  Grindin er öll gagnskorin með derkamyndum og auk þess með tveim mannshöfðum með stórum kömpum.  Grindin hefir verið með gyllíngu og platan undir fögur og gyllt.  Á hliðunum eru 8 ferhyrníngar silfraðir(?), og eru á milli drekamyndir gylltar, og nokkur drekahöfuð silfruð eða með silfurlit neðst á röndinni.  Skildirnir eru 4 þumlúngar og 2 línur á lengd, en 3 1/2 þumlúngur á breidd.

Aðrar upplýsingar

Ártal
900 - 1000
Safnnúmer
Safnnúmer A: 96-b Safnnúmer B: 1864-54-2
Stærð
10.2 x 8.9 cm Lengd: 10.2 Breidd: 8.9 cm
Staður
Staður: Þjórsárdalur/Lausafundir, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Þjórsárdalur, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Fundaskrá Undirskrá: Fundaskrá_Lausafundir
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Brjóstnæla
Heimildir
Kristján Eldjárn. Kuml og haugfé. Reykjavík 2000, bls. 81, 359 og 371-372.