Þorn, skráð e. hlutv.

900 - 1000
Sylgja úr bronzi, eða ein tegund af feldardálk.  Það var stór hríngur með tveim hnúðum og opinn á einn veg, en hann var brotinn er hann fannst.  Yfir um hrínginn lá stórt þorn með stórum hnúð, og typpi aptur úr að ofanverðu, þar sem hríngurinn lék í þorninu.  Nú er hríngurinn týndur og þornið brotið, og er að eins eptir helmíngurinn, sem er efri parturinn, og er hann 2 þumlúngar og 7 línur.  Far hafði verið í þornið, slitið eptir hrínginn, og um það hafði brotnað, og muna menn, að þornið var nær hálfu lengra en það er nú.  Snemma á söguöldinni hafa Íslendíngar haft þrjár tegundir feldardálka, enda höfum vér sýnishorn af þeim öllum í safninu (nr. 96, 97 og 190).  Þá er það að eins ein aðal-feldardálkstegund, sem enn er hér óþekkt, sumsé hinir laungu og mjóu feldardálkar, er hafa beygíngu um miðjuna: sjá Worsaae : Nordiske Oldsager 1859, nr.425-429.  Slíkir feldardálkar eru eflaust úr heiðni og ef til vill frá því áður en Ísland bygðist.  Auk þess, sem þetta er merkilegt fyrir oss að vita, þá er það og merkilegt fyrir útlenda, því af þeim geta þeir meðal annars betur ráðið aldur feldardálka þeirra, er hjá þeim finnast.

Aðrar upplýsingar

Ártal
900 - 1000
Safnnúmer
Safnnúmer A: 97 Safnnúmer B: 1864-55
Stærð
7 x 0 cm Lengd: 7 cm
Staður
Staður: Þjórsárdalur/Lausafundir, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Þjórsárdalur, Ísland
Sýningartexti
Þorn úr stórri hringnælu úr kopar sem fannst í Þjórsárdal, en fundaratvik eru ókunn. Sylgjan glataðist og þorninn var brotinn áður er hann kom til safnsins. Líklegast úr kumli konu frá 10. öld, þá sennilega sama kumli og brjótsnælurnar tvær nr. 96. 97 Þorn úr stórri hringnælu úr kopar sem fannst í Þjórsárdal á Suðurlandi, en fundaratvik eru ókunn. Sylgjan glataðist og þorninn var brotinn áður er hann kom til safnsins. Líklegast úr kumli konu frá 10. öld, þá sennilega sama kumli og brjótsnælurnar tvær nr. 96. 97 Þorn úr sylgju, mun úr kumli konu frá 10. öld. Spjaldtexti: Skart Konur áttu skartgripi svo sem skrautnælur, kamba úr horni, nálhús og snyrtitangir úr kopar og látúni. Einnig steinasörvi, hálsfestar með gler-, stein- og raftölum. Klæðaprjónar og sylgjur gátu verið í eigu jafnt karla sem kvenna. Ornaments Women had various ornamental items such as brooches, combs made of horn, needle cases and copper and brass tweezers, also strings of glass, stone or amber beads. Pins and clasps were worn by both men and women.
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Fundaskrá Undirskrá: Fundaskrá_Lausafundir
Efnisorð / Heiti