Nikulás helgi

Úr aðfangabók: Byskupsmynd, útskorin, ef til vill Nikulásar helga, því að honum var Saurbæjar-kirkja í Eyjafirði helguð, en þaðan kom mynd þessi með nr. 10945 til þjóðminjasafnsins í Höfn. Myndin er útskorin úr eik, 70 cm. að hæð.  Hefur verið máluð(?) en allur farfi er nú af. Bagall (o. fl.?) eru yngri endurbætur: hann er í vinstri hendi, en sú hægri upprjett til blessunar. Mítur á höfði. (13728b.) Kirkjur Íslands, 10.bindi, bls. 303: Líkneski [...], biskupsmynd í gotneskum stíl, skorin úr eik, sögð úr Saurbæjarkirkju. Líklega heilagur Nikulás frá Mýra, sem var annar af tveimur verndardýrlingum Saurbæjarkirkju. Á líkneskinu er fágaður skurður og hefur það verið málað og gyllt. Getið er um Nikulásarlíkneski í máldögum kirkjunnar 1318, 1394, 1461 og 1525. Ekki er þó hægt að fullyrða að þetta sé sama líkneskið. (Sett inn af Sigrúnu Blöndal, 16.5.2011)

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Nikulás helgi
Safnnúmer
Safnnúmer A: 10946 Safnnúmer B: 1930-357
Stærð
70 x 0 cm Lengd: 70 cm
Staður
Staður: Saurbæjarkirkja í Eyjafirði, Kirkjan, 605-Akureyri, Eyjafjarðarsveit
Sýningartexti
Mynd af Nikulási helga biskupi frá Bár á Ítalíu. Úr kirkjunni í Saurbæ í Eyjafirði, sem helguð var meðal annarra Nikulási. Margar kirkjur á Íslandi voru helgaðar honum. 10946 Mynd af heilögum Nikulási bikupi frá Bár á Ítalíu. Margar kirkjur á Íslandi voru helgaðar Nikulási í kaþólskum sið. Gersemar - Fornir kirkjugripir úr Eyjafirði í vörslu Þjóðminjasafns Íslands Nikulás helgi úr Saurbæjarkirkju   Saurbæjarkirkja var helguð Nikulási biskupi frá Bár í kaþólskri tíð, og þaðan er þessi biskupsmynd komin. Hún var gefin til Íslands árið 1930 ásamt fjölmörgum öðrum gripum, sem fluttir höfðu verið til Kaupmannahafnar á 19.öld. Myndin er skorin úr eik, 70 cm á hæð. Hún hefur verið máluð en allur farfi er nú af. Biskupsbagallinn og fleira eru yngri endurbætur. Verkið er talið útlend smíð frá síðmiðöldum. St. Nicholas from Saurbær Church in Eyjafjörður. The church at Saurbær was sonsecrated to bishop Nicholas from Bari in the Catholic period. The statue is believed to be of foreign origin, dating from the late Middle Ages. (Sett inn af Sigrúnu Blöndal, 6.4.2011) Spjaldtexti: 2. Myndir helgra manna frá 15. eða 16. öld. Mynd Nikulásar biskups frá Bár (a) og Jóhannesar guðspjallamanns(b) eru úr Saurbæjarkirkju í Eyjafirði. Mynd Péturs postula (c) er úr Hallormsstaðakirkju. 2. Statues of saints, 15th or 16th century. St. Nicholas of Bari (a), St. John the Evangelist (b) and St. Peter the Apostle (c).
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Þóra Kristjánsdóttir. Gersemar - Fornir kirkjugripir úr Eyjafirði í vörslu Þjóðminjasafns Íslands. Akureyri, 1999.     Kirkjur Íslands. 10.bindi. Ritstjórar: Jón Torfason, Þorsteinn Gunnarsson. Reykjavík, 2007.

Upprunastaður

65°26'49.8"N 18°12'38.0"W