Líkneski, úr kirkju

1500 - 1600
Úr aðfangabók: Postulamynd, ef til vill Jóhannesar guðspjallamanns, útskorið úr furu, h. 71 cm. Hefir verið málað (á síðari tímum?), Kyrtill gulur neðst og kápan brún. - Var sent til þjóðminjasafnsins í Höfn með nr. 10944: sagt vera frá kirkjunni í Saurbæ í Eyjafirði. (13728a). Kirkjur Íslands, 10.bindi, bls. 305: Líkneski [...], helgimynd í gotneskum stíl, skorin úr furu. [...] Ekki kemur fram í máldögum Saurbæjarkirkju að hún hafi átt Jóhannesarlíkneski. Aftur á móti átti hún líkneski af Sesselju en henni var kirkjan helguð. (Sbl, 16.5.2011)

Aðrar upplýsingar

Ártal
1500 - 1600
Safnnúmer
Safnnúmer A: 10945 Safnnúmer B: 1930-356
Stærð
71 x 0 cm Lengd: 71 cm
Staður
Staður: Saurbæjarkirkja í Eyjafirði, Kirkjan, 605-Akureyri, Eyjafjarðarsveit
Sýningartexti
Útskorin mynd, líklegast af Jóhannesi guðspjallamanni, málning virðist ekki upphafleg. Úr Saurbæjarkirkju í Eyjafirði, talin frá 16. öld. 10945 Útskorin mynd, líklegast af Jóhannesi guðspjallamanni. Úr Saurbæjarkirkju í Eyjafirði á Norðurlandi, mun frá 16. öld en málning ekki upphafleg. 10945 Gersemar - Fornir kirkjugripir úr Eyjafirði í vörslu Þjóðminjasafns Íslands: Postulamynd, ef til vill af Jóhannesi guðspjallamanni. Líkneskið var sent til Kaupmannahafnar um miðja 19. öld, og sagt vera frá kirkjunni í Saurbæ í Eyjafirði. Það var gefið til Íslands árið 1930 ásamt fjölmörgum öðrum gripum. Líkneskið er skorið úr furu, 71 cm á hæð. Það er málað, en málningin virðist hafa verið endurnýjuð á síðari tímum. Picture of an apostle, perhaps the Evangelist John. The statue is thought to have been in the church at Saurbær in Eyjafjörður. (Sett inn af Sigrúnu Blöndal, 6.4.2011) Spjaldtexti: 2. Myndir helgra manna frá 15. eða 16. öld. Mynd Nikulásar biskups frá Bár (a) og Jóhannesar guðspjallamanns(b) eru úr Saurbæjarkirkju í Eyjafirði. Mynd Péturs postula (c) er úr Hallormsstaðakirkju. 2. Statues of saints, 15th or 16th century. St. Nicholas of Bari (a), St. John the Evangelist (b) and St. Peter the Apostle (c).
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Líkneski, úr kirkju
Myndefni:
Biblíumynd
Heimildir
Þóra Kristjánsdóttir. Gersemar - Fornir kirkjugripir úr Eyjafirði í vörslu Þjóðminjasafns Íslands. Akureyri, 1999.     Kirkjur Íslands. 10.bindi. Ritstjórar: Jón Torfason, Þorsteinn Gunnarsson. Reykjavík, 2007.

Upprunastaður

65°26'49.8"N 18°12'38.0"W