Veggspjald, skráð e. hlutv.

1970 - 1975
Prentað veggspjald / plakat, rautt á lit en texti á því er hvítur og svartur. Plakatið er væntanlega frá fyrri helmingi 8. áratugs 20. aldarinnar og er auglýsing um kröfugöngu 1. maí. Fyrir auglýsingunni standa Félag bókagerðarnema og Félag járniðnaðarnema. Gefandi er Ragnheiður Ásta Pétursdóttir, fyrrum þulur í Ríkisútvarpinu en Inga Lára Baldvinsdóttir, fagstjóri Ljósmyndasafns Íslands afhenti fyrir hönd Ragnheiðar. Á plakatinu stendur: BARÁTTUGANGA LAUNAFÓLKS 1. MAÍ GEGN UNDANSLÆTTI - HARÐARI KJARABARÁTTU AUKIÐ LÝÐRÆÐI Í VERKA- LÝÐSHREYFINGUNNI GEGN AFSKIPTUM RÍKIS AF GERÐUM SAMNINGUM VERJUM FRJÁLSAN SAMNINGSRÉTT STÖÐVUM KAUPRÁNIÐ GEGN FLOKKSRÆÐI Í VERKALÝÐS- HREYFINGUNNI Safnast verður saman á Hlemmi 1. maí kl. 13.00. Gengið niður Laugaveginn kl. 14.00 á Hótel Íslandsplan (Hallærisplan) þar sem haldinn verður útifundur. Ávörp - söngur - tónlist. Félag bókagerðarnema Félag járniðnaðarnema

Aðrar upplýsingar

Ártal
1970 - 1975
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2008-63
Stærð
41.8 x 29.4 x 0 cm Lengd: 41.8 Breidd: 29.4 Hæð: 0 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti