Söðuláklæði

1852
Söðuláklæði, glitofið, af venjulegri gerð.  Lengd þess 153 cm og breidd 105 cm.*  Á því eru tvö pottblóm sem teygjast sitt frá hvorum enda við miðju á klæðinu, hlykkjóttur teinungur meðfram langhliðum, en gerð áletrun jaðra á milli við annan endann:  "1852 M Haldorsdottir", upphafsstafir, bil jöfn, og strengur ofan við og neðan.  Dúkurinn svört einskefta, ullarband í því sem í er ofið, og litir grænn, þrjú stig, rauður, þrjú stig, dökkbleikur, blár, fjólublár, grár, tvö stig, gulur og brúnrautt.  Brydding úr einskeftu, rauð og græn, á endum, og köflótt léreftsræma er höfð þar hjá brún að aftan. Sjá má minni háttar slitmerki á.**  Nafnáletrunin á við Margréti Halldórsdóttur. Maður hennar var Guðmundar Ólafssonar hreppstjóra í Ásgarði í Grímsnesi (f. 1798, d. 1872), en hann var faðir Guðlaugs sýslumanns. *Stærðin er nær því að vera 151,5 x 106 cm. **Annars er áklæðið í góðu ástandi. Með annarri skammbrún að aftanverðu er festur franskur rennilás til að nota við upphengingu klæðisins. Það var gert á Þjóðminjasafni Íslands. (Freyja Hlíðkvist Ómarsdóttir).  

Aðrar upplýsingar

Ártal
1852
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1963-73
Stærð
151.5 x 106 cm Lengd: 151.5 Breidd: 106 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Söðuláklæði