Skurðmynd, + mótíf

Tvö ljón, 2 álna og 15 þumlúnga laung skorin úr tré.  Almenningur segir, að þau sé sæljón.  Þau teygja sig líkt og þau sé á sundi: einnig hafa þau einkennilega fætur og mjög grimmilegan einkennilegan svip.  Þau hafa verið mjög haglega skorin, en eru nú mikið skemmd af elli.  Ljón þessi voru sitt hvorumegin við kirkjudyr á Kálfafelli í Fljótshverfi.  Sumir segja, að ljón þessi hafi verið gjör handa kirkjunni af Írum, aðrir segja af Frökkum, en engar sönnur vita menn á því. „Þessar tvær skurðmyndir virðast vera skjaldberar, en það sést í "scroll-ear" topp á skildi sem ljónin halda í. Annaðhvort var þetta hússkreyting, eða skipsmynd. Ef þetta er skipsmynd, þá væru ljónin sitthvoru megin við stafnið, og skjöldurinn væri fremst.“ (GThE 2025)

Aðrar upplýsingar

Gefandi: Jón Árnason
Safnnúmer
Safnnúmer A: 66 Safnnúmer B: 1864-24
Stærð
168 x 0 cm Lengd: 168 cm
Staður
Staður: Kálfafellskirkja, Kirkjan, 881-Kirkjubæjarklaustri, Skaftárhreppur
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti

Upprunastaður

63°56'42.3"N 17°41'14.8"W