Einkenniskorði, herlæknis
Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Einkennisbúnings-korði
drs Jóns Hjaltalín landlæknis. Hann er með handbjörg og hjöltum og skálp
úr messing og er á því fallegt, drifið verk. Meðalkafli er klæddur skelplötum
og þær farnar af, sem á röndunum hafa verið, en hann er ferstrendur, 2,9
x 1,5 um miðju, þar er hann mestur: messingarplata aldrifin og með
upphleyptu Aþenu-höfði. Brandurinn er tvíeggjaður, frammjór og oddhvass.
Eggjar hafa verið gerðar beittar. Hann er 80,5 cm. að l. og br. efst 2,7.
Skálpurinn eptir því, 84,5 að l., 1,5 - 3,2 að br. Skrautverkið er vopnaskraut
og blómskraut í fornrómverskum stíl. Korða þennan mun Jón Hjaltalín hafa
fengið er hann var herdeildarlæknir í Danmörku. Eptir hann fjekk Egill
Egilsson korðann og hann gaf gef. hann. Sbr. brjef frá gef. til forstöðumanns
safnsins, dags. 25. s. m. Sbr.
Þjms. 4908.
Aðrar upplýsingar
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 8425
Safnnúmer B: 1921-203
Stærð
80.5 x 2.7 x 0 cm
Lengd: 80.5 Breidd: 2.7 Hæð: 0 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Einkenniskorði, herlæknis