Lukt, + hlutv.

2006
Lugt (ljósker) fyrir kerti, ferstrend. Grindin er úr járni, hvít á lit, og hliðarnar úr gleri með grænum blæ. Í botn luktarinnar er fest lítil skál undir kerti. Fólk hefur keypt þessar luktir og sett á grafir. Luktin er ný og ónotuð. Gefandi er Ellingsen, Grandagarði (þá), Reykjavík, 16.2.2006. Luktin er í upprunalegum pappaumbúðum og er framleidd í Finnlandi. Öllum gripunum sem skráðir eru á númerið Þjms. 2006-26 safnaði Ágúst Ó. Georgsson í tengslum við samtímarannsókn sína á þeim sið að setja ljós á grafir og kveikja á þeim („ljósin á gröfunum“). Rannsóknin var liður í undirbúningi að gerð sýningar um andláts- og útfarasiði sem fyrirhuguð var í Bogasal.

Aðrar upplýsingar

Gefandi: Ellingsen
Ártal
2006
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2006-26-4
Stærð
21 x 10.4 x 0 cm Lengd: 21 Breidd: 10.4 Hæð: 0 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Lukt, + hlutv.