Stundatafla
1961 - 1969

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Stundaskrá frá 7. áratugi 20. aldar,
útgefin af Loftleiðum. Stundaskráin er merkt gefanda, Vigdísi Pálsdóttur,
en á þessum tíma kenndi hún í Kennaraskólanum. Úr töflunni má lesa að hún
hefur kennt 3. og 4. bekk munsturteikningu og föndur, alla daga vikunnar,
eftir hádegi. Á hinni hlið töflunnar er litskrúðug auglýsing frá Loftleiðum,
þar sem ánægð börn eru á leið í flugvél, en flugmaður og flugfreyja standa
hjá og heilsa börnunum. Stundaskráin er prentuð í Lithoprent hf.
Dóttir gefanda, Inga Lára Baldvinsdóttir,
fagstjóri Ljósmyndasafns Íslands, afhenti fyrir hönd móður sinnar.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1961 - 1969
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2008-12-2
Stærð
13.1 x 24.8 x 0 cm
Lengd: 13.1 Breidd: 24.8 Hæð: 0 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Stundatafla



