Altaristafla

1750 - 1800
Úr aðfangabók: Altaristafla, kvöldmáltíðarmynd, máluð á eikarspjald, st. 102 x 100 cm.: hefur verið límt saman úr 5 fjölum, sem nú eru sundurlausar og fúnar. Þeim hefur verið haldið saman með 2 eikarrimum, er fest hefur verið undir enda hinna að aptan. Spjaldið hefur verið í djúpri, sljettri og einfaldri umgjörð, gyltri, en hún er einnig sundurlaus og fúin. Hefur verið fest saman með járnhornum að aptan: er 7,5 að br. Málverkið mun vera eptirmynd, fremur ljeleg, eptir gömlu verki. -Uppi yfir Jesú er gullið ský og sjást í því 5 smáenglahöfuð. Mun taflan vera dönsk og frá síðari hluta 18. aldar.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1750 - 1800
Safnnúmer
Safnnúmer A: 8400 Safnnúmer B: 1921-177
Stærð
102 x 100 cm Lengd: 102 Breidd: 100 cm
Staður
Staður: Landakirkja, Kirkjuvegur 100, 900-Vestmannaeyjum, Vestmannaeyjabær, Vestmannaeyjabær, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Altaristafla
Heimildir
Kirkjur Íslands. 11.bindi. Ritstjórar: Jón Torfason, Þorsteinn Gunnarsson. Reykjavík, 2008.

Upprunastaður

63°26'13.5"N 20°16'20.3"W