Laufaprjónshnappur

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Laufaprjónshnappur úr silfri gylltur, með góðu víravirki, vegur 1 1/8 lóðs. Hann er með steyptu laufi með Maríumynd í, líku og nr. 224, nema hvað María virðist hér að standa á mána í staðinn fyrir að hún virðist heldur að krjúpa á hinu, og eins á nr. 373. Hér hefir hún og geisla út frá sér allri, sem líka er sýnt á hinum. Fyrst er menn hafa sögur af þessum hnöppum, þá báru konur þá þrjá í faldinum, sjá Vikivaka kvæði: laufa prjóna ber hún þrjá: sbr. skiptabréf Kristínar Guðbrandsdóttur biskups: en á 18. öld báru konur opt 5-7 laufaprjóna: en mig undrar mest hvað þeir eru stórir og þúngir: í skiptabréfi frá 1726 segir: 3 laufaprjóns hnappar forgylltir með 4 laufum hver, vega 3 lóð og 3 qvintin.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Guðmundur Einarsson
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 387
Safnnúmer B: 1867-29
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti



