Prjónastokkur

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Prjónastokkur, útskorinn, smíðaður úr birki, ferstrendur, með kringdum útskotum við enda, og hverfiloki. Lengd hans um 34 cm, breidd 4 cm og hæð 4,5 cm. Bolurinn eintrjáningur, plata við annan enda á stokk að ofan, fest með trétittum, 12,4 cm á lengd, en hinu megin og í miðju er lok sem snúist hefur um typpi á útskotinu, typpið nú horfið, en gat fyrir það í lokinu, ílangt, stúfur er á hinum hlutanum og skarð í plötu andspænis. Þykkt loks og plötu 0,7 cm. Skorið er ofan af lokenda, helming niður, og brúnin að innan liggur á ská þversum, lengd úrtaksins 10,7 cm, hefur hér verið þynna. Gerður er blómstrengur á loki, plötu og langhliðum, rós er á öðru útskota en röð lóðréttra blaða með þang yfir við miðju á útskotum að utan. Skurðurinn lágt upphleyptur.
Fallegur gripur. Greina má rifur í bolnum og bletti. Stokkur þessi var hirtur í rusli hjá Sorpeyðingarstöð Reykjavíkur.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Kristján Ólafsson
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1963-280
Stærð
34 x 4 x 4.5 cm
Lengd: 34 Breidd: 4 Hæð: 4.5 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Prjónastokkur





