Fiskilóð

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Fiskilóð, með flaska
og eftirlíkingu beitu. Er þinullinn um 107,8 m á lengd á honum 96
önglar, taumarnir um og innan við 38 cm á lengd, en önglar um 6 cm, þvermál
þinuls 0,4 cm, og tauma 0,2 cm. Flaskinn, ekki all stór hleri, er
smíðaður úr furu, hann er áttstrendur, nær jafn breiður á báða vegu, í
honum þrjár fjalir samhliða, og tveir okar negldir öðru megin, breidd 44,8
cm og 45,7 cm, en þykkt plötu 1,6 cm, okarnir, sem ná hér um bil brúna
á milli, eru 4 cm á breidd, þykkt 1,5 cm. Andspænis miðjum miðbrúnum
er borað gegn kringlótt gat, er í eitt þeirra bundinn þinullinn, en í hin
spottar, jafngildir, og spotti slíkur liggur frá þinalshálsi, lengd þeirra
um 80 cm,með þeim er lóðin bundin föst, en hún er hringuð á flaskann og
önglar hafðir í miðju. Á alla öngla er krækt eftirlíking beitu, ljósabeitu,
úr hvítgulum svampi. Flaskinn er gljáborinn.
Samanber Sjóminjasafn.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Kristján Ólafsson
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1964-1
Stærð
6.7 x 5.3 x 0.7 cm
Lengd: 6.7 Breidd: 5.3 Hæð: 0.7 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Fiskilóð